作词 : Jón Thoroddsen 作曲 : Íslenskt þjóðlag Krummi svaf í klettagjá Kaldri vetrarnóttu á Verður margt að meini Verður margt að meini Fyrr en dagur fagur rann Freðið nefið dregur hann Undan stórum steini Undan stórum steini Allt er frosið úti gor Ekkert fæst við ströndu mor Svengd er metti mína Svengd er metti mína Ef að húsum heim ég fer Heimafrakkur bannar mér Seppi´ úr sorp að tína Seppi´ úr sorp að tína Öll er þakin ísi jörð, Ekki séð á holtabörð Fleygir fuglar geta Fleygir fuglar geta Lítur yfir byggð og bú Á bænum fyrr en vakna hjú Veifar vængjum skjótum Veifar vængjum skjótum Sálaður á síðu lá Sauður feitur garði hjá Fyrrum frár á velli Fyrrum frár á velli Krunk, krunk, nafnar, komið hér krunk, krunk, því oss búin er Krás á köldu svelli Krás á köldu svelli