X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það [00:44.600 Þú horfðir á mig deyja Þú horfðir á mig deyja og deyja og deyja og deyja [01:02.165 Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna [01:30.378 Þú horfðir á mig deyja og deyja Þú horfðir á mig deyja og deyja og deyja og deyja [01:49.500 Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans Hann krýpur á hnjánum Holskeflan er gröf Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna Dreyri vellur - hann fellur í valinn [02:28.797 Þú horfðir á mig deyja Þú horfðir á mig deyja og deyja og deyja og deyja [02:46.413 Þú Þú horfðir á mig deyja Þú Þú horfðir á mig deyja Þú Þú horfðir á mig deyja Þú Þú horfðir á mig deyja