Kona og maður sitja við sama borð. Piltur og stúlka, þetta eru bara orð. Í hverjum manni býr kona og í hverri konu karl. Og tvisvar sinnum verður hver gamall maður barn. Seint mun fólki sæma í krafti sannfæringar aðra menn að dæma. Við erum öll úr sama efni, syngjum öll í sama kór. Það er sama hvern ég nefni hvort þú ert lítill eða stór. Þá sannast það að nýju að allir þurfa hrós, líkt og sálin þarfnast hlýju, þarf lífið sólarljós. Ertu nógu mikill maður til að viðurkenna að, við upphaf hverrar ævi er kynið ávallt það. Kona og maður eiga að sitja við sama borð. Piltur og stúlka, þetta eru aðeins orð. Því seint mun fólki sæma í krafti sannfæringar aðra menn að dæma. Við erum öll úr sama efni syngjum öll í sama kór. Það er sama hvern ég nefni hvort þú ert lítill eða stór. Þá sannast það að nýju að allir þurfa hrós, líkt og sálin þarfnast hlýju þarf lífið sólarljós. Við erum öll úr sama efni Við erum öll úr sama efni syngjum öll í sama kór. Það er sama hvern ég nefni hvort þú ert lítill eða stór. Þá sannast það að nýju að allir þurfa hrós, líkt og sálin þarfnast hlýju þarf lífið sólarljós.